blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

6.25.2004

Lifi innri bylting!

Það á sér stað barátta. Barátta fyrir því að vera, hugsa, hafa skoðannir, standa fyrir sínu og upphefja. Mikið helvíti er þetta erfitt. Eins og eg hef talað um áður er það maður sjálfur og engin annar ser Á að setja sínar skoðannir og viðmið, en stundum er það eins og að standa á vígvelli þegar aðrir vilja breyta því. Eg er alls ekki að segja að maður eigi BARA að fara sínar eigin leiðir og gefa skít i allt og alla og hlusta ekki á neinn. Auðvita er það holt og þroskandi að hlusta og skoða skoðannir annarra en svo er það val manns sjálfs hvað maður gerir við þær skoðannir. Tekur þær til athugunnar, gerir þær að sínum að einhverju leiti eða öllu, eða bara er ósammála. Þetta virðist vera svo rökrétt og auðveld skoðun. Ennn... svo verða á vegi mans persónur sem vilja gleypa mann og gera sitt að manns eigin! Persónur sem láta það ekki nægja að segja sína skoðun og ýja svo að þeim í framhaldi af þvi heldur hætta ekkert fyrr en þær hafa talið sig “sigra”! Óneytanlega kemur virðingarstuðullinn þar sterklega inn um hversu sterk baráttan verður fyrir mann sjálfan. dam! ekkert hægt að segja en viva la resistance

0 Comments:

Post a Comment

<< Home